Biography
:format(jpeg):mode_rgb():quality(90)/discogs-images/A-3217568-1518450175-8349.jpeg.jpg)
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Real name: Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Members: Geirmundur Valtýsson
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar.Geirmundur stofnaði síðan eigin hljómsveit 1971, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar, sem hann hefur starfrækt og verið hljómsveitarstjóri fyrir allar götur síðan. Hljómsveitin lék fyrst mikið á sveitaböllum á Norðurlandi og Austurlandi.
Árið 1972 söng Geirmundur eigin lög inn á tvær tveggja laga plötur sem Tónaútgáfan á Akureyri gaf út. Á þessum plötum voru lögin Bíddu við, og Nú er ég léttur, en hljómsveitin Trúbrot annaðist undirleik: „Þessi lög slógu svo rækilega í gegn að hljómsveitin fór að spila um allt land. Þá varð ekki aftur snúið. Við höfðum þá meira en nóg að gera, hvort heldur sem var á sveitaböllum, í Reykjavík eða á öðrum þéttbýlisstöðum.“
Hljómsveit Geirmundar hefur síðan leikið fyrir dansi og er enn að. Þá hefur hljómsveitin leikið á Kringlukránni frá 2003.