0:00
0:00

Save as Playlist     Clear     Source: YouTube

Share with your Friends
Hjalti Gunnlaugsson Free Music

Biography

Hjalti Gunnlaugsson Free Music

Hjalti Gunnlaugsson

Real name: Hjalti Gunnlaugsson

Effective period / Period of releases: 1985 - 1988

Hjalti Gunnlaugsson.

 Fæddur í Reykjavík, 12.júní 1956

 Sótti barnastarf (sunnudagaskóla) Hjálpræðishersins sem barn.

 Byrjaði að spila á orgel í foreldrahúsum sem barn, eignaðist fyrsta gítarinn sinn um 12 ára aldur. Lærði fyrstu gripin hjá Berta Möller. Var gítarleikari í pophljómsveitum á unglingsárum.

 Komst til trúar í mars 1980 hjá Ungu fólki með hlutverk, sem þá hafði samkomur í Grensáskirkju.

 Hafði þá gert eina lofgjörðarsnældu með hóp úr UFMH, Syngjum Drottni nýjan söng, sem UFMH gaf út.

 Fór í trúboðsferð til Vestmannaeyja þá um sumarið með hljómsveit, flutti frumsamið efni. Hljómsveitin hét 1.Kor.13 og spilaði við ýmis tækifæri, í félagsmiðstöðvum borgarinnar, á vakningarsamkomum á vegum UFMH o.fl., í rúm 2 ár. Hljómsveitin gaf síðan út 2ja laga plötu með lögum eftir Hjalta.

 1980 gerði hann aðra lofgjörðarsnældu, Opnum hjörtu okkar, sem hann gaf út sjálfur.

 Stjórnaði upptökum á plötu Jóns Sveinssonar, hún kom út 1984.

 Gaf út sína fyrstu sólóplötu 1985, Sannleikurinn í mínu lífi. Samdi öll lögin og flesta textana sjálfur,

 Stjórnaði, ásamt öðrum, tónlistarstarfi Vegarins frá því um 1985-1997. Stjórnaði upptökum á 4 lofgjörðarsnældum sem Vegurinn gaf út á þeim arum, Lofum hann 1-4.

 Stjórnaði upptökum á hljómplötu sem ABC hjálparstarf gaf út, Hjálparhönd og samdi 6 lög á hana.

 Á lög á 2 hljómplötum Fíladelfíu: “Spurðu mig”, 1 lag, og “Allir mætast þar,” 3 lög.

 Stjórnaði kór og hlómsveit við hin ýmsu tækifæri ásamt konu sinni, t.d. á samkomum Benny Hinn í laugardalshöll, samkomum þar sem Billy Graham predikaði í gegnum gervihnött o.fl. Hefur spilað á ýmsum öðrum hljómplötum, t.d. með Þorvaldi Halldórssyni á plötu hans Föðurást.

• Syngjum Drottni nýjan söng, UFMH 1978
• Opnum hjörtu okkar, HG 1980
• 1.Kor.13, HG 1981
• Jón Sveinsson, 1984
• Sannleikurinn í mínu lífi, HG 1985
• Lofum hann 1-4, Vegurinn 1990-1995
• Hjálparhönd, ABC

External Pages

hjalti.wordpress.com/textar/

glatkistan.com/2024/05/01/hjalti-gunnlaugsson/