0:00
0:00

Save as Playlist     Clear     Source: YouTube

Share with your Friends
Graupan Free Music

Biography

Graupan Free Music

Graupan

Real name: Graupan

Members: Valtýr Björn Thors

Graupan var stofnuð síðla árs 1990 af eftirfarandi tónlistarmönnum:

Helgi Hauksson: gítar, trompet, orgel
Valtýr Björn Thors: gítar, saxófónn
Ragnar Óskarsson: bassi, orgel, ásláttur
Jóhannes Ágústsson: trommur, trompet
Elli “Boj”: trommur

Hljómsveitin breyttist í kvartett í apríl 1991 þegar Elli yfirgaf sveitina. Með þessari kjarna liðskipan spilaði Graupan einungis þrenna tónleika :

23. maí 1991: Tveir Vinir, upphitun fyrir Bless
28. júní 1992: Héðinshúsið, Óháða listahátíðin "Loftárás á Seyðisfjörð”
15. júní 1993: Faxaskáli, Óháða Listahátíðin

Þennan öfluga kvartett má heyra á snældunni “Eytt”, sem var gefin út 1992 í einungis 50 eintökum. Hún seldist samstundis upp og þykir fágætur safngripur í dag. Kvartettinn átti einnig hljóðbútinn “Nei" á safnsnældunni "Snarl 3" (1991).

Erfitt er að festa hendur á tónlist Graupunnar á þessum árum, en henni var einhversstaðar lýst sem harðkjarna-geimrokk-djassspuna. Hljómsveitin hafði þá reglu að spinna allt af fingrum fram. Þegar Graupan spilaði í æfingarhúsnæði sínu, fyrst í Hampiðjunni (1990-1991) og síðar á Súðarvoginum (1991-1992), var allt hljóðritað og því liggur geysimikið efni óútgefið eftir sveitina. Þá voru allir þrennir tónleikarnir teknir uppá myndband.

Meðal áheyranda á frægum tónleikum Graupunnar í Héðinshúsinu 1992 voru ungir tónlistarmenn sem seinna stofnuðu Sigur Rós. Hermir sagan að þeir hafi orðið fyrir miklum áhrifum frá Graupunni þetta kvöld.

Síðla sumars 1992 sagði Valtýr sig úr hljómsveitinni og leystist hún því upp sem kvartett þó hún hafi verið með óvænt “comeback” ári síðar á Óháðu Listahátíðinni 1993. Helgi hélt hinsvegar áfram að hljóðrita undir Graupu nafninu og snældan “Lyfjun” frá 1993 hefur að mestu að geyma sólóupptökur hans. Valtýr gekk svo síðar aftur til liðs við Helga og í þeirri mynd hefur Graupan oft komið fram ásamt ýmsum gestum, allt til dagsins í dag.

Graupan – a legendary Icelandic psychedelic-doom-impro-punk quartet from Iceland, known for having a decisive influence on the music of Sigur Rós.

External Pages

glatkistan.com/2015/02/25/graupan/