0:00
0:00

Save as Playlist     Clear     Source: YouTube

Share with your Friends
Daysleeper Free Music

Biography

Daysleeper Free Music

Daysleeper

Real name: Daysleeper

Icelandic rock band.

Hljómsveitin Daysleeper var stofnuð í október 2001 og kom í fyrsta sinn fram á sjónarsviðið á Hlustendaverðlaunum FM 957 í febrúar 2002 þar sem þeir fluttu lagið Kumbh Mela. Lagið varð síðan eitt það heitasta á öldum ljósvakans og fór hæst í 2. sæti Íslenska listans á FM 957 og var ellefu vikur á lista. Þetta lag kom þeim á kortið og síðan þá hafa þeir vakið gríðarlega athygli með þægilegri, einlægri og yfirvegaðri spilamennsku og framkomu.

Önnur smáskífa þeirra; Again, var einn af sumarsmellum ársins 2002 og myndbandið eitt það mestspilaða á sjónvarpsstöðinni PoppTíví. Lagið fór hæst í tíunda sæti Íslenska listans á útvarpsstöðinni FM 957 og var þar ellefu vikur á lista.

Daysleeper var eitt þeirra banda sem komu fram á sex ára afmæli Undirtóna og á Icelandic Airwaves þar sem þeir fengu frábærar viðtökur. Það fékk einnig fyrsta stóra plata sveitarinnar AvaAlice sem kom út á merki Skífunnar seinni hluta árs 2002.

© Bárður Örn Bárðarson