Artists
Album Info
Release Date: 1970Label: SG-Hljómplötur
Lögin á þessari nýju plötu eru eftir hinn landskunna og fjölhæfa listamann, Sigfús Halldórsson. En hljómplatan er jafnframt gefin út í tilefni af því, að hinn síungi Sigfús heldur upp á fimmtiu ára afmæli sitt á þessu ári. Lög Sigfúsar hafa um árabil verið á hvers manns vörum, sum notið slíkrar hylli, að einstætt má telja. Fyrsta lag plötunnar, Litla flugan, hlaut slíkar vinsældir, að strax morguninn eftir að Sigfús frumflutti það í útvarpinu, þá var öll þjóðin trallandi þessa perlu hans. Og ef til vill má telja Dagný eitt bezta lagið af þessu tagi, sem gert hefur verið á Íslandi. Elzta lag Sigfúsar, Við eigum samleið, sem hann gerði aðeins sextán ára gamall, stendur Dagný lítið að baki. Og þá má ekki gleyma Tondeleyó eða Lítill fugl og svona er hægt að halda áfram.Það eykur gildi laganna, að Sigfús hefur ætíð haft samvinnu við afbragðs ljóðskáld. Er hlutur Tómasar Guðmundssonar þeirra mestur á þessari hljómplötu.