0:00
0:00

Save as Playlist     Clear     Source: YouTube

Share with your Friends
Mánar by Mánar

Artists


Album Info

Release Date: 1970

Label: SG-Hljómplötur

Text in Icelandic from the backside of the cover:

Hljómsveitin Mánar var stofnuð árið 1965, en nú er aðeins einn eftir af hinum upprunalegu Mánum, þ. e. a. s. Ólafur Þórarinsson, gítarleikari og forsvarsmaður hljómsveitarinnar. Aðrir í Mánum eru Björn bróðir Ólafs, sem leikur á orgel, Smári Kristjánsson, sem leikur á bassa og svo Ragnar Sigurjónsson, sem leikur á trommur. Ragnar lék í nokkur ár með Dumbó-sextett á Akranesi, en hóf að leika með Mánum þegar hann flutti til Selfoss á miðju árinu 1970.
Mánar hafa leikið um allt Suðurlandsundirlendi síðustu árin. Þeir hafa nokkrum sinnum látið til sín heyra á vestur- og norðurlandi, en allt of sjaldan í Reykjavík, þvi ekki leikur vafi á, að Mánar eru í röð allra beztu hljómsveita hér á landi. Hljómplata sú, sem þeir senda frá sér nú sannar þau ummœli svo ekki verður um villst. Bœði eru lögin eftir Ólaf, en svo ólik að þau gera plötuna sérstaklega skemmtilega og útsetningar, leikur og söngur Mána er afbragð.