Artists
Album Info
Release Date: 2017Label: Not On Label
Um Omotrack:Við erum bræðurnir Markús og Birkir Bjarnasynir. Við erum ólumst upp í Eþíópíu, meðal annars á stað sem heitir Omo Rate. Þaðan kemur hugmyndin að nafni hljómsveitarinnar, Omotrack. Við höfum spilað og samið tónlist saman frá því við vorum litlir.
Um verkefnið:
Um er að ræða breiðskífu sem mun bera nafnið Mono & Bright . Hún mun innihalda frumsamin lög og texta eftir Omotrack.
Við höfum fengið einstaklega hæfileikaríkt fólk með okkur í lið til þess að vinna þetta verkefni, hljóðmenn og blástursleikara, og erum við þeim ótrúlega þakklátir!
Gríma Katrín Ólafsdóttir - Trompet
Gunnar Kristinn Óskarsson - Trompet
Pétur Örn Jónsson - Tenór saxófónn
Jónas Sturla Gíslason - Hljóð & tæknimaður
Helstu hljóðfærin sem við notumst við eru raftrommur, rafgítar, píanó, synþar og blásturshljóðfæri en það hefur reynst erfitt að skilgreina tónlistarstefnu okkar. Við höfum fengið ýmsar tillögur; "Raf-popp" , "Raf - Indie", "Lo-fi raf-rokk" og lengi mætti telja. Sjálfir höfum við ekki hugmynd en erum engu að síður ánægðir með útkomuna.