Artists
Album Info
Release Date: 1975Label: SG-Hljómplötur
Textabrot af bakhlið plötuumslags:Þau Kristln Lilliendahl og Árni Blandon sungu mikinn fjölda barnalaga í barnatímum sjónvarpsins veturinn 1974—75. Ekki sáust þau á skjánum, þess í stað sáust leikbrúður í fuglalíki, sem voru látnar syngja og nefndust þær Söngfuglarnir.
Nú hafa þau Kristín og Árni sungið tuttugu lög inn á plötu, sem áreiðanlega falla öll í góðan jarðveg hjá yngstu kynslóðinni. Sumt eru gamalkunn barnalög en önnur ný, sem áreiðanlega eiga eftir að heyrast oft á næstunni. Vert er að benda sérstaklega á hinar bráðskemmtilegu útsetningar Reynis Sigurðssonar á undirleiknum. Jafnframt stjórnar hann hljómsveitinni, sem leikur undir og leikur sjálfur á mikinn fjölda ásláttarhljóðfæra.
— Svavar Gests

:format(jpeg):mode_rgb():quality(40)/discogs-images/R-6982075-1430937903-4242.jpeg.jpg)