:format(jpeg):mode_rgb():quality(40)/discogs-images/R-8014615-1453504659-2899.jpeg.jpg)
Artists
Album Info
Release Date: 1969Label: SG-Hljómplötur
Hópur barna kemur í heimsókn til ömmu um jólin og gerist þar margt skemmtilegt, því það er ekki aðeins að börnin syngja fyrir ömmu skemmtileg jólalög, heldur líka barnasálma og jólasálmana og þar kemur reyndar pabbi við sögu, því hann syngur jólasálmana með börnunum. Amma segir börnunum hins vegar frá jólunum í gamla daga og er fléttað inn í frásögn hennar hinum góðkunnu kvœðum Jóhannesar úr Kötlum um Jólasveinana, Jólaköttinn að ógleymdum Grýlu og Leppalúða. Og einnig fer amma með Jólaguðspjallið fyrir börnin í söguformi, sem á að gera það öllum börnum skiljanlegt. Þá kemur jólasveinn við sögu, því börnin rifja upp fyrir ömmu heimsókn jólasveins á jólatrésskemmtun, sem þau voru á og er þar um einstœða hljóðritun að rœða, sem gerð var fyrir nokkrum árum, þegar Ólafur Magnússon frá Mosfelli hreyf œsku Reykjavíkur í gervi Kertasníkis.— Svavar Gests